Ótrúlega gaman að því hvað maður fær alltaf skemmtilega "sjúkdóma" þegar maður erað lesa um þessi lyf hehe... t.d. er ég búnað vera með alls konar lungnabólgu, alnæmi, lifrarbólgu, malaríu, berkla, lús, kláðamaur, krabbamein ... og það nýjasta í dag ... B-vítamínskort.
Var meirað segjað pælí að kíkja í apótekið og kaupa mér B-vítamín......þá fannst mér þó ráðlegast að kaupa bara fjölvítamín ef ske kynni að ég væri með C-vítamínskort ... og svo kannski var ég að misskilja B12 vítamínskortinn sem fólinsýruskort svo það ætti líkað fá að fljóta með ....
þið heimsækið mig bara á (geð)spítalann.......
23 apríl 2006
Birt af gudrunst kl. 13:11
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)
|