18 maí 2006

Tombóla, tombóla!!
Eða svona næstum...
Ég er samt að auglýsa hér með eftir því að ég er með sjónvarp sem mig vantar endilega að lána einhverjum, 21" (held ég) og alveg skrambi fínt bara, ma&pa gáfu mér það á 20ára afmælinu mínu og það er við fulla heilsa ennþá! við erum bara að snobbast upp og skipta yfir í hjúts flatskjá....
Svo er ég líka að auglysa eftir nýjum eiganda að leðursófasetti sem samanstendur af 3+2+1 setti, það er reyndar gamalt en það er sko ekta! Það er réttsvo að sjáist á 2 pullum í stóra sófanum en annars er þetta í prýðisgóðu formi! Er settið sem var heimahjá Kötlu ef það hringir einhverjum bjöllum, hún er að snobbast upp líka...
Endilega láta mig vita, skilja eftir komment eða hvað eina, fólk má jafnvel hringja í mig ef æsingurinn er mikill, sérstaklega með sófasettið því það gæti endað hjá góða hirðinum, sjónvarpið kemur nú bara til með að safna ryki....
Sölukveðjur, Guðrún Lind