Það var svo frábært útí þýskalandi! Samt ótrúlega mikið ég að um leið og ég slökkti á símanum mínum á keflavíkurflugvelli mundi ég að ég kunni ekki pin númerið! Þannig að þegar út kom lenti ég í miklum vandræðum með það að reynað hringja í Röggu! Fór og ætlaði að skipta peningum fyrir símann en maðurinn vildi endilega selja mér símakort. Svo þegar að símanum kom var hann bilaður og tók ekki kortið!! og ég þurfti að þjóta uppá lestarstöð svo ég ákvað að reyna ekki frekar fyrr en þangað kom. Þegar þangað kom prófaði ég annan síma og var hann líka bilaður! Tók hvorki peninga né kort. ég hljóp um alla stöðina að leita að síma því lestin mín varað fara og ég varð að ná í Röggu fyrst! Fann loks síma í hinum endanum og gat hringt og hljóp til baka svo ég náði lestinni :)
Þegar ég kom til Leipzig var ótrúlega gaman að hitta Röggu mína:) Við fórum á pizzustað og fengum okkur ótrúlega djúsí pizzu. Því næst var haldið í búðina tilað kaupa gos og jarðarber og kirsuber fyrir Eurovision partýið nammi:) Eurovision partýið var geggjað! ótrúlega fyndið að heyra þetta á Þýsku! Gaurinn talaði líka bara ágætlega um hana Silvíu þó hann væri kannski aðeins of gamall tilað skilja húmorinn sjálfur:) Við átum líka ótrúlega mikið íslenskt nammi og vorum mjög high!
Næsta dag var kíkt í búðir! Fundum meirað segja Oasis en hún hefur ekki verið í Leipzig áður. Yndisleg búð:) En það besta var Vero Moda. Fyrir utan að vera fáránlega ódýr og selja gallabuxur á 24 Evrur þá sést niður í stráka skiptiklefann frá buxnastandi í kvennadeildinni!! Það má segja að við höfum skoðað þessar buxur nokkuð vel (virkaði samt sem sölutrix því Ragga keypti par). Svo komu konur ca.50-60 ára bara tilað kíkja! Þær greinilega vissu af þessu! og afgreiðslustúlkan kíkti alltaf niður reglulega! Þetta var svakalegt!!!
Um kvöldið var svo farið á ekta írskan bar mjög gaman. Við Ragga komumst að því að þjóðverjar klæðast ekki bleiku, og við báðar í mjög bleikum outfittum! Ein þýsk stelpa sem var þarna fór að spyrja okkur hvað við höfðum túristast og við sögðum henni vero moda söguna og hún var mjög hneyksluð (ég var nú bara hneyksluð því hún vissi ekki hvað vero moda er!). Horfði illu augnaráði á okkur þar sem við sátum ótrúlega saklausar í bleiku fötunum okkar, með bleikt naglalakka á tánum!
Daginn þar a eftir ákváðum við að bæta úr þessu og fórum á stasi safnið. Þar gat á að líta alls kyns minjar frá tímum þessarar illu þýsku lögreglu. var meirað segja fangaklefi og hann var nú ekki huggulegur með klósettið bara á miðju gólfi! Ekki gaman að vera með öðrum í klefa ehemmm....svo voru alls konar vopn og einkennisbúningar....(samt ekki feitir því þetta voru pokabuxur). Við skoðuðum meirað segja kirkjuna hans Bach og gröf hans og þar var indælt :) MJög menningarlegar. Um kvöldið hélt menningin áfram (fyrst með Eurovision;) ) svo með skoðun á gömlum virkisvegg þar sem reyndist vera skemmtistaður...og það mjög skemmtilegur staður! og aftur vorum við einu bleiku stelpurnar hahaha. Við sáum gaur í bol sem á stóð AFI. Það er víst þýskt goth-metal-band!! Með svona saklaust nafn hahaha.
Daginn eftir fórum við svo til Weimr þar sem Ragga býr. Á leiðinni í lestinni fleygði e-r gaur sér fyrir lestina og af þessu hlaust klst. bið. Enginn veit svo sem um afdrif hans þeir gáfu ekki upp allar upplýsingar um þetta mál. En miðað við allt ólíklegt að hann hafi verið mjög hress....
Weimar er ótrúlega lítill sætur bær með hellulögðum götum og sætum merkilegum húsum (sést á öllum túristunum sem eru að skoða þau) og fallegum garði með styttum af tónlistarsnillingum og Willa Sjeik. Húsið hennar Röggu er þó sætast :) algjörlega ótrúlega sætt. Ég fékk meirað segja Bridget Jones rúmföt:) Við bökuðum Brownies og horfðum á friends elduðum líka brjálað góðan kvöldverð. Svo um kvöldið var smá spa. Með jarðarberjaandlitsmaska og sætu bleiku naglalakki:) svo lágum við bara með andlitsmaskann okkar og lásum saucy greinar í mary clarie og cosmopolitan. Svona á lífið sko að vera! Það var ekki svo gaman að koma aftur heim í venjulegan hversdagsleikann en svo mundi ég að ér í sumarfríi og þá var aðeins skárra að vera hér í stinningskalda og norðvestan átt!
25 maí 2006
Birt af gudrunst kl. 12:03
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)
|