30 júlí 2006

Hvernig er það pípól, hvað á að gera af sér um versló?
Við skötuhjúin ætlum að jeppast yfir hálendið, part af Sprengisand og svo Gæsavatnaleið (norðan Vatnajökuls) og enda í Ásbyrgi á laugardeginum til þess helst að vera á Sigur Rósar tónleikum þar á sunnudagskvöldinu, inn í þessu plani er náttúrulega fullt af keyrslu og stoppum og skoðeríi, en ég ætla nú ekki að skrifa ritgerð um þessa einu helgi ;) Þetta miðast reyndar við að við fáum jeppaferðafélaga og að veðrið sé sæmilegt. Annars eru austfirðir í bakhöndinni og Neistaflug þar inní ef það verður vöntun á jeppafélaga eða góðu veðri.
En þið ???