Jæja nú er ég komin heim frá Portúgal þar sem var yndislegt að vera. Ég hafði ekki gert mér miklar vonir um staðinn (hefði heldur viljað fara til Rússlands) en verð að segja að mér finnst þetta mun betra en Spánn. Fallegri gróður, skemmtilegra umhverfi og meira svona lifandi e-ð.
Hótelið var líka frábært, risa sundlaug í garðinum og íbúðin okkar var þvílíkt stór! Mjög ódýrt að versla (sem var mjög gaman:) ). Ég er líka voða brún og sæt núna :) (samt aðallega eiginlega bara freknótt í framan) (já og sólarexem á lærunum ... úff).
En ég er held ég ekki alveg búin að ferðast í ár...er að spá í að skella mér í bakpokaferð til Færeyja. Þær sem hafa áhuga eru velkomnar með, fer líklegast 28.ágúst........flugið kostar 20 þús
09 ágúst 2006
Birt af gudrunst kl. 19:09
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)
|