25 ágúst 2006

Jæja .... ætli maður verði ekki að koma með smá sögu frá dögum sínum sem tilraunadýr fyrir íslenskar lyfjarannsóknir og erfðagreininguna.... kvöldið byrjaði sem sagt á því að ég kom hingað klukkan 8. Þá vorum við látin setja upp sjónvarpið sem átti að vera komið upp áður en við komum!
Svo var smá viðtal um lyfjanotkun í vikunni (sem mátti ekki vera nein) og tekinn blóðþrystingur og hitastig mælt.
Auk þess fékk ég herbergi sem er mín bækistöð yfir helgina í því eru tvo rúm (ér samt ein þarna) og stórt skrifborð. Þar að auki er ég ein á hæðinni fjarri öllum öðrum. Ég mun sem sagt hafa það notalegt þarna uppi og skrifa ritgerðina æðislegu fyrir apóteksvinnuna...sem ég einmitt hætti í í dag en ég mun líklega ekki sýta það.
og stað er núna bara sú að ér ógeðslega þreytt (klukkan samt ekki orðin 11 og ég get ekki sýnt fólkinu hér það að ég fari að sofa kl.11! þrátt fyrir að ég verði reyndar vakin kl.6) þar sem ég svaf sama og ekkert í nott og vaknaði kl.7 og fór að horfá despo rétt fyrir 8!
Á morgun mun ég fara í alls konar spennandi próf og það verður gaman að sjá hvernig ég kem út úr þeim. fullt af blóðprufum t.d. og þvagprufur