
Jæja Föroyjar...hvað getur maður sagt? Yndislegasti staður á jarðríki? Allavega nálægt því, og Föroyingarnir þeir eru sko yndislegir þó svo þeir selji reyða blýanta og eigi Reyðan Krossur. Einnig virðist það vera viðurkennd starfsgrein að vinna se
m Timburmaður (má ég vera með?), við lásum viðtal við einn í Dimmalættningnum og hann var sko bara hress.
Þegar við komum til Föroyja mundum við nú ekki alveg hvað hostelið okkar hét og fórum því á vitlaust! En Kunningjastovan (tourist information) var þar rétt hjá og gátum við því fengið upplýsingar um hvar okkar hostel var. Það var rétt fyrir utan Torshavn á alveg hreint yndislegum stað uppá hæð þar sem hestar bitu gras í haga og sást yfir allan bæinn.
Fyrstu 2 dagarnir fóru í að skoða Torshavn, kíkja í sms verslunarmiðstöðina þeirrs sem verið er að víkka eins og stendur, skoða miðbæinn, Skansinn, gömul hús sem hýsa ráðuneytin, heimastjórnarhúsið, höfnina o.fl.
Á miðvikudeginum leigðum
við okkur svo lítan sætan Yaris og keyrðum um alla Streymoy og Eysturoy. Byrjuðum á að fara til Kirkjubæjar þar sem gefur meðal annars á að líta 900 ára gamalt timburhús sem enn er búið í (það var mjög draugalegt þar og ég held það sé alvöru draugur þar), einnig var þar gömul hálfbyggð kirkja frá 1200. Svo fórum við til Rúnavíkur á Eysturoy sem er þriðji stærsti bærinn í Föroyjum. Þar fórum við í mjög fallega gávubúð en keyptum engar gávur að sinni. Í bænum eru mörg skemmtileg gömul hús og einnig er höfnin mjög falleg. Rétt hjá þessum bæ eru bæirnir Nyrðri og Syðri Göta, þaðan sem hún Eivör söngkona er. Við fórum á eina veitingastaðinn í Syðri Göta og þar var bara seld frosin kaka (reyndar afþýdd en samt) og frosin pizza. Einnig var þar mjög stór túristabúð, strönd og stór auglýsingaskilti með Eivöru út um allt! Nyrðri Göta var mun skemmtilegri og stærri bær. Eftir þetta langaði okkur út á Eiði sem er nyrst á einni til að skoða risann og kellinguna sem eru fræg í Föroyskum þjóðsögum. Þau voru send frá Íslandi til að draga Færeyjar þangað (bjarga þeim undan dönunum þið skiljið). Þetta gekk ekki betur en svo að þau urðu bæði að steini þegar solin kom upp og horfa nú löngunaraugum til Íslands um ókomna tíð.
Bærinn Eiði er hins vegar mjög skemmtilegur og var valinn fegursti bær Föroyja árið 1999. Þeir eiga fótboltavöll sem er staðsettur lengst útá eiði í sjónum og voru greyin strákarnir sífellt að sparka boltanum útí sjó. Þar er einnig mjög falleg kirkja og safn. Mikil uppbygging á sér stað í þessum bæ verið er að byggja fullt af risastórum húsum út um allt. Svo heimsóttum við glerlistakonuna á Eiði og keyptum af henni smá glerlist. Þetta var ótrúlega krúttleg kona sem talaði við okkur á svo sætri föroysku og við skildum næstum því allt.
Svo fórum við í Kirkj
ubyur því þar eru gömul víkinga kuml. Lítið fannst af munum í þessum kumlum en það fundust þó árar og e-ð smá af skartgripum. Þessi bær var fáránlega sætur inni í litlum dal við hafið og það var mjög falleg strönd með hvítum sandi þarna.
Fórum í nokkra fleiri bæi en enduðum í hinum fræga bæ Vestmanna á Streymoy. Þar er einn veitingastaður og er hann opinn frá 12-14. En hins vegar er sólbaðsstofa og hárfríkkari. Ut frá þessum bæ eru svakalegir klettar sem gaman er að sigla undir og einnig að skoða fuglavarpið en það eru aðallega tjaldur og lundar sem verpa þarna.
Síðasti dagurinn okkar fór í að skoða öll söfnin í Torshavn og rölta aðeins meira í miðbænum. Mér þóttu þeir eiga ansi flotta fornmuni og gömlu bóndabæirnir á Fornminnissafninu voru mun reisulegri en þeir sem voru reistir á Íslandi á sama tíma. Listasafnið var líka æðislegt og voru uppáhaldsverkin mín eftir færeyska málarann Fuglöy. Reyndar var íslensk sýning á safninu sem var mjög skemmtileg líka. Þar voru verk eftir Karolínu Lárusdóttur og reyndar norðmanninn Nerdrum sem er búsettur á Íslandi.
Svo fórum við í nokkrar gávubúðir og keyptum okkur m.a. olíulampa (sá á eftir að koma sér vel í vetur). Gávubúðirnir í Föroyjum eru einstaklega skemmtilegar, þetta er mjög smekklegt fólk. Verð líka að segja að allt er svo hreint og fallegt og snyrtilegt þarna. og fólkið er svo yndislegt og rólegt og hjálplegt. þetta var því í alla staði hin besta ferð og verð ég að mæla með því að fólk kíki á frændur vora í Föroyjum við fyrsta tækifæri, þið munið ekki sjá eftir því :)
03 september 2006
Birt af gudrunst kl. 10:11
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)
|