09 september 2006

Ég var að fatta að það er svolítið langt síðan ég hef bloggað hér, sérstaklega um ekki neitt... Ætla því að bæta úr því með glæsibrag!
Ég varð svo inspired af sóda-umræðunni í samþættu og pælingunum í hjónabandssælunni að ég mátti bara til með að skvetta í smá sælu! Prufaði að baka eina sælu í sumar en hún mistókst eitthvað og Axel talaði um að hann væri ekki mikill kex kall (hún varð ss soldið hörð....) en nú er ég komin með legendary uppskrift frá tengdó sem á víst ekki að klikka, en svo við komum með rannsóknarlegt sjónarhorn á þetta blogg, þá er 1 tsk af matarsóda í 2 hjónabandssælum! Sælurnar eru bara nýkomnar útúr ofninum og verða smakkaðar sem kvöldkaffi ;)
Voru þið annars búnar að sjá Sylvíu Nótt heimsækja Magna, endilega kíkja á þetta, best er þegar hún kallar Lucas fattlaðan!
Svo var ég svo úber dugleg að prenta út allt sem var komið á ugluna, að ég prentaði 1 glósupakkann í sérhæfðri, þannig að ef einhverjum áhugasömum vantar þetta, þá má hann fá ;)
....var þetta ekki ómerkilegt ?