03 október 2006

Hvernig drekkur fólk kaffi með gleraugu?
Sko ég hef verið að pæla af því að ér nú með hálsbólgu og búnað drekka ansi mikið te... hvernig drekkur fólk heita drykki með gleraugu? því ég var að reynað klára ritgerðina mína og fá mér tebolla og hafa það eins notalegt og ég gat. En í hvert skipti sem ég dreypti á teinu fékk ég þessa líka þvílíku móðu á gleraugun.
Nú hef ég oft séð fólk drekka t.d. kaffi með gleraugun á sér en aldrei fá þessa móðu t.d. eldri bróðir minn og flestir þeir kennarar og vinnufélagar sem ég hef haft um ævina....hvernig í ósköpunum er þetta gert? Býður maður þar til það er orðið kalt (er það ekki vibbi?) eða drekkur maður það á e-n sérstakan hátt?

Þetta eru nú bara svona pælingar dagsins....