09 október 2006

Ohhh ég á svo menningarlegan kött:) Varað blasta Andrea Bochelli áðan meðan ég bakaði brauð og litla morðóða dýrið lagðist bara niður á alla 4 fyrir framan græjurnar og naut tónanna. Aldrei séð hann jafn þægan nema kannski þegar hann stalst tilað leggja sig á rúminu hjá m&p... maður hefði næstum haldið að hann væri bara lítill engill:)

En akkuru ætli kettir fái ekki garnagaul eins og fólk? Oft er hann mjög svangur, kannski búnað era úti allan daginn og dallurinn niðri tómur og hann ræðst á matinn þegar maður gefur honum en aldrei heyrir maður garnagaul... spes...