04 nóvember 2006

Greit, á föstudagskvöldi fatta ég að ég var búin að finna fullt af heimildum um í raun viltaust lyfjaform (hydrogel en ekki micellur) þannig að ég þurfti að leyta mér að nýjum heimildum (sem gekk reyndar sæmó) en það næsta sem tekur við er tímafrekast (amk hjá mér): að lesa þetta... þannig að ég sé fram á myndarlega bauga á mánudagshádegi þegar ég loksins næ að lyfta hausnum frá koddanum vegna svefnlítillar helgar (geri ég ráð fyrir) en samt sem áður var ég rétt í þessu að gera hvað? nei, ekki lesa! jú einmitt, surfa internetið! En það er "allt í lagi" því ég rakst á þetta sem er ótrúlega krúttlegt! og ákvað þessvegna að deila smá gleði (að undanförnu smá væli) með ykkur elskunum!