02 nóvember 2006

hæbbs, ég sit hérna á bókhlöðunni og er búin að vera hérna síðan í morgun og ákvað að taka mér smá pásu frá bókinni. Ákvað að skella inn hérna einu bloggi bara svona til þess að láta ykkur vita að ég er á lífi og bara nokkuð hress:) Er bara búin að vera nokkuð dugleg í félagslífinu það sem af er vetri, búin að fara í nokkur afmæli, innflutningspartý og vísindaferðir. Einnig skellti ég mér á footloose um daginn og var það bara rosa gaman. Verð nú samt að fara að hitta á ykkur á djamminu eða fara með ykkur á djammið! Annars hefur ekkert gerst hjá mér, annað en það að vindonur mínar eru endalaust að eignast börn. En ætli það sé ekki kominn tími á kíkja aftur í bókina, sjáumst:)