14 desember 2006

hellú
sá að það var verið að tala um krossana úr LEN í prófinu í commentum svo ég ákvað að deila með ykkur svarinu sem ég fékk frá elínu soffíu. ég sem sagt skrifaði að ég hefði viljað vita að það væri ekki dregið niður fyrir röng svör þegar ég var ennþá í prófinu. það gagnast mér lítið að vita þetta þegar ég var búin með prófið og búin að svara krossunum með tilliti til þess að ég gæti verið dregin niður.

Sæl Eydís.
Ég áttaði mig því miður fyrst á því eftir að prófinu lauk að þessi hefðbundni haus með upplýsingum um frádrátt fyrir röng svör var ekki á spurningu 1. Þetta voru leið mistök og við munum að sjálfsögðu hafa það í huga við yfirferð prófsins. Flestir tel ég þó að hafi unnið prófið út frá sömu forsendum og þú þ.e. að dregið yrði frá fyrir röng svör, og því standið þið þannig jöfn eins og verið hefur. Fyrir góða nemendur ætti þetta ekki að skipta máli. Fyrir laka nemendur gæti þetta hækkað þá eitthvað ef þeir hafa giskað mikið og losna við refsifrádráttinn.

Bestu kveðjur og gleðileg jól.
Elín Soffía.

ok ég ætla nú ekkert að fara að ákveða hvort ég er góður nemandi eða lakur, eins og hú talar um, en ég sleppti því að merkja við allavega 3 krossa. ef ég hefði giskað á svörin, sem ég hefði auðvitað gert ef ég hefði vitað að það væri ekki dregið niður fyrir villur, þá hefði ég mögulega getað fengið 6% í viðbót. mig munar alveg um það!!! þetta er næstum því sama vægi og ritgerðarspurningin!! hún segir að þetta ætti ekki að skipta máli en mér finnst það nú ekki.
en samt skil ég alveg af hverju þær breyttu þessu því þetta stóð náttla ekkert á prófblaðinu:/
algjört klúður!!!! hvað finnst ykkur???

knús Dísa Diggs