15 desember 2006

Sælar stúlkur, ég sendi sem sagt fyrirspurninga mína á Elínu Soffíu og hún hefur svarað. Best er að þið lesið það bara sjálfar og birtist bréfið hér að neðan. Ég verð að segja að ég er mjög ánægð með hana og Sellu í þessu máli til dæmis svarar hún póstinum mínum strax og ljóst að þær vilja bregðast við á sem sanngjarnastan hátt. Hér kemur þá svarið:

Þakka þér fyrir málefnalegt bréf. Það er mín tilfinning að allir eðalangflestir hafi vitað að dregið yrði frá fyrir röng svör, þar sem búið varað tilkynna það í fyrirlestrum og þeir sem voru í vafa í prófinu spurðu ogfengu þau sömu svör að það yrði dregið frá, enda alltaf verið þannig. Ef þaðhefur farið fram hjá einhverjum þá munum við sjá það þegar við förum yfirkrossana. Við munum því ekki taka endanlega afstöðu um hvernig gefið verðurfyrir, fyrr en búið er að fara yfir krossana og þá metið hvaða leið erréttlátust með hagsmuni nemenda í huga. Það er sjálfsagt að halda okkur viðhefðbundið form og draga þá ákvörðun okkar tilbaka að draga ekki frá fyrirrangt svar, ef hún veldur óánægju eða mismunun að ykkar mati. Hreinn Pálsonprófstjóri telur ekki neitt því til fyrirstöðu í þessu máli.Sesselja er veik með hita og hálsbólgu svo það dregst eitthvað fram í næstuviku að fara yfir prófið. Bestu kveðjur og áframhaldandi gleðilegan og árangursríkan próflestur.Elín Soffía

Ég held að það muni allir geta verið sáttir við niðurstöðuna þegar þessu máli er lokið :)
gangi ykkur vel stúlkur og sjáumst hressar á morgun!!