20 desember 2006

Til hamingju með að vera búnar í prófunum!!!

Ég fór í puma búðina í gær að reyna að finna buxur á bróðir minn. Ég var ekki alveg viss hvaða stærð hann notar, svo Grétar spurði afgreiðslukonuna hvort þau væru með töflu yfir hæð og stærð eins og Nike er með. Hún segir nei en tekur síðan næstu buxur og kíkir á miðann og segir: Þessar buxur eru fyrir 42 - 44 ára.
Haha þvílíka vitleysan, hvernig getur verið að afgreiðslufólk viti ekki að þetta er stærðin á buxunum en ekki aldur notandans. Ef ég færi eftir þessum leiðbeiningum þá þyrfti ég að ganga um nakin þar til ég yrði 38 ára.

En síðan rakst ég á þessa frétt, frekar ógeðslegt:
Þegar Tom Fischer, í Seattle, sá að bíllinn hans var að verða bensínlaus, ákvað hann að spara sér peninga og stela bensíni af öðrum bíl. Hann valdi sér stóran húsbíl , læddist að honum og smeygði slöngu ofan í tankinn. Svo saug hann fast, til að fá bensínið til að renna. Þegar lögreglan kom á staðinn sat eigandi húsbílsins grátandi af hlátri á tröppunum. Fischer lá hinsvegar gubbandi og stynjandi á jörðinni. Hann var líka dálítið subbulegur í framan, eftir að hafa sogið upp í sig vænan skammt úr salernistanki húsbílsins.