dautt segiði, mar verður þá að bjarga því, hripa niður línu og aðra, en eins og nefnt hefur verið, þá hefur mar busy dagskrá!
þá er þreyttur þriðjudagur langt á veg kominn, "ekkert" eftir nema reikna stæ fyrir morgundaginn, spurning hversu langt frameftir mar verið að því til að ná að klára, svona er það að skemmileggja helgarnar með einhverjum slappleika, fuss og svei. núna sit ég bara og sötra te, hlusta á queen, og róa mig niður áður en ég tækla fræðina sem kennd er við stærð...
mar var að koma heim, brunaði í víðidalinn eftir skóla og sótti loðna barnið mitt á leikskóla. svo bíð ég bara eftir að stóri kallinn komi heim og gefi mér að éta, te-ið er til að tóra þangað til...
það var meiriháttar spenningur í efnafræði áðan, ég segi nú ekki annað! við vorum að fatta hvað væri í rauninni lítið eftir, ef ég er heppin þá slepp ég með að mæta í 2 tíma í viðbót og þá er ég búin! slíkur var ákafinn að við Erla erum að spá í að mæta á föstudagsmorgni, já ég sagði á föstudags-morgni!, í næstu viku og ná forskoti, þá verður mar í góðum málum eftir það, væri ótrúlega ljúft að vera bara búin með þetta snemma í nóvember... þá væri mar bara í skólanum á þri, mið og fim fyrir hádegi eftir miðjan nóv.... Jibbííí!!!! sú áætlun fær prik hjá mér !! ;o)
28 október 2003
Birt af Nafnlaus kl. 18:09
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)
|