27 október 2003

já, það er bara ekkert að gerast hérna...
minns er bara aðeins að líta á tölvuskjáinn áður en ég sest og reyni að glíma við stæ skiladæmi, ég hef núna 3 klst fyrir 3 dæmi... efast um að ég nái þvi.... það einhvern veginn endar alltaf þannig að ég geri eikkað annað fyrir hádegi heldur en að læra á mánudögum, ég passaði mig í gærkvöldi að vaska seint og vel upp svo ég mundi ekki freistast til þess núna, en hvað haldiði... þá bakaði ég bara muffins í staðinn...
ég sit líka hérna að hlæja að hundinum mínum, hún er fyndnust, er núna að missa sig á 2L sprite-flösku, þeyist á eftir henni út um alla íbúð að reyna að ná taki á henni, soldið eftir fyrir hvolpaling með lítinn mun...
mér er greinilega ekki ætlað í þessa fyrstu vísindaferð... fattaði um helgina að ég er ekki að fara að mjólka uppí sveit næstu helgi eins og ég hélt... og var þá gróflega farin að ath þann möguleika að kíkja í vísó, en svo bara er ferðinni frestað um viku og færð á helgina sem ég er að fara í sveitina, well, mar deyr nú ekki á því að missa af vísó, það er reyndar tvísýnt um hina vísó líka var ég að fatta, það er jeppaferð þá helgi.. sé til
anyways, best að byrja að glíma...