27 febrúar 2004

Jæja, þá er langþráð helgi gengin í garð...ekki það að vikan hafi verið lengi að líða, en það er samt alltaf gott þegar það er kominn föstudagur. Helgin hjá mér byrjaði í svitasprengju, þ.e. í body attack en ég og Stefáns skelltum okkur í hann áðan. Tíminn var nú ekki ýkja fjölmennur en því var bara tekið betur á því skal ég segja ykkur. Jeminn eini hvað þetta eru svakalegir tímar. Þjálfarinn fræddi okkur líka um það að maður fengi hreinlega ekki betri brennslu eða þol í neinum öðrum tímum. GO ATTACK!!! Hún segist geta sópað upp spikinu eftir okkur í vor, ekki slæmt það.
Annars er ég bara svaka sátt með próftöfluna, þvílík snilld að fá viku í lokin fyrir efnó dauðans. Það er e-ð verið að bæta upp fyrir mis-ið fyrir jól þegar það voru tveir dagar fyrir próf dauðans....
Vei ég hlakka svo til í sumar, get ekki beðið eftir að það komi sól og maður getur farið að klæða sig í létt föt og kannski bara fara til útlanda.... eeehhemmm, ef það er peningur til staðar í ágúst...eeehhemmm.
En framundan er lærdómshelgi, ekkert djamm núna enda er ég ennþá með klígjuna síðan síðast iiijjjúú eplasnafs-æl....
GÓÐA HELGI!!