vá hvað tíminn líður rosa hratt, það er kominn mars. Litla sistir gistir eina nótina enn hjá mér sem er allt í lagi ég sé samt ósköp lítið af henni því hún er bara að deita á fullu, það væri samt rosalegt ef hún fer að ganga út á undan mér. Ég skellti mér á matur 2004 á sunnudaginn og borðaði yfir mig sem var fínt því það kostaði 850 krónur inn, það var einnig vínsmökkun á staðnum og sumir fengu sér aðeins of mikið að drekka því það voru hjón um fimmtugt að slást og ég hélt að konan myndi drepa kallinn því hélt hálstaki á honum og sat ofaná honum í leiðinni, en löggukallarnir komu og fjarlægðu fólkið áður en þau lögðu staðinn í rúst. Svo skellti ég mér í bíó á gothika(kann ekki að skrifa það) hún er rosaleg ég var drullu hrædd og fegin að litla sistir gisti hjá mér. Jæja verð að fara að elda.
01 mars 2004
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)
|